


|
Réttindanám Suzukikennara |
|
Samræmdar prófkröfur innan Evrópu Suzukikennaranám er framhaldsmenntun fyrir tónlistarkennara. Til að öðlast réttindi sem Suzukikennari þarf að fara í gegnum sérnám sem skipt er í fimm stig. Hverju stigi lýkur með prófi þar sem prófdómarar frá þrem löndum dæma. Prófið felst í að leika á hljóðfæri, kenna nemanda og svara spurningum um heimspekilegan grunn aðferðarinnar og kennsluatriði námsefnisins. Fíðla Píanó Selló
Réttindi til kennaraþjálfunar Eftir að hafa lokið öllum 5 stigunum getur kennari sótt um að hefja nám sem kennaraþjálfi. Sótt er um hjá Íslenska Suzukisambandinu. Það tekur 2 til 4 ár að vinna að þessu marki og þá þarf að vera undir handleiðslu kennaraþjálfa með viðurkennd réttindi. Réttindin eru staðfest af Evrópska Suzukisambandinu (ESA). Nánari upplýsingar hjá Íslenska Suzukisambandinu eða hjá kennaraþjálfum.
Eldri námskeið Suzuki fiðlukennaranámskeið 2010 september 2010 Kennaranámskeiði lauk með prófi 2. október 2010.
Suzuki kennaranámskeið 2010 Nú stendur yfir kennaranámskeið á vegum Suzukisambandsins fyrir fiðlur, píanó, selló og víólur. Próf verða haldin í júní og í haust. Dómarar koma frá ýmsum löndum. |



|
Íslenska Suzukisambandið ● Pósthólf 5453, 125 Reykjavík ● Email: suzukisamband@gmail.com |
|
Á döfinni
Harald Söderberg frá Noregi hélt kynningu fyrir tilvonandi Suzuki gítarkennara þann 15 janúar 2011. Verið er að vinna í því að stofna hóp fyrir fyrsta námskeiðið. |