





|
Íslenska Suzukisambandið ● Pósthólf 5453, 125 Reykjavík ● Email: suzukisamband@gmail.com |
|
Íslenska Suzukisambandið |
|
Saga Suzukisambandsins Íslenska Suzukisambandið var stofnað í Tónlistarskólanum á Seltjarnarnesi í nóvember 1985 af kennurum og foreldrum frá Reykjavík og Akureyri. Þar var þá haldið námskeið fyrir Suzukinemendur. Aðalhvatamaður að stofnun sambandsins og fyrsti formaður þess var Haukur F. Hannesson sellóleikari. Fyrsti formlegi aðalfundur var síðan haldinn í júní 1987. Þar voru samþykkt lög félagsins. Í þeim segir meðal annars: Tilgangur félagsins er að stuðla að útbreiðslu og viðgangi aðferðar Shinichis Suzuki í uppeldismálum á Íslandi (Suzukitónlistaruppeldi eftir Kristinn Örn Kristinsson).
|
|
Íslenska Suzukisambandið er félag fjölskyldna barna sem stunda hljóðfæranám eftir móðurmálsaðferð Dr. Shinichi Suzuki, Suzuki-kennara og annarra áhugamanna um þessa kennsluaðferð. Félagið stendur fyrir námskeiðum fyrir nemendur og heldur utan um réttindanám Suzuki-kennara. Á Íslandi er kennt á fiðlu, píanó, selló, víólu, flautu og orgel. Tónlistarskólar sem kenna samkvæmt Suzukiaðferðinni. |